Munur á milli breytinga „Sigurður Björnsson, Glúmsstöðum“
(Ný síða: Sigurður Björnsson. Fæddur um 1774. Dáinn 26. maí 1820. Foreldrar: Björn Jónsson bóndi í Neð...) |
|||
| Lína 9: | Lína 9: | ||
Sigurður Björnsson var húsmaður á [[Atlastaðir|Atlastöðum]] 1810. Var í [[Hælavík]] 1811, en mun hafa verið við búhokur á [[Glúmsstaðir|Glúmsstöðum]] 1812-15. Sagnir herma, að Kristín kona hans hafi látizt þar í volæði eftir barnsburð. Sigurður varð holdsveikur, 1816 var hann karaómagi á [[Látrar|Látrum]]. | Sigurður Björnsson var húsmaður á [[Atlastaðir|Atlastöðum]] 1810. Var í [[Hælavík]] 1811, en mun hafa verið við búhokur á [[Glúmsstaðir|Glúmsstöðum]] 1812-15. Sagnir herma, að Kristín kona hans hafi látizt þar í volæði eftir barnsburð. Sigurður varð holdsveikur, 1816 var hann karaómagi á [[Látrar|Látrum]]. | ||
| − | <noinclude>[[ | + | <noinclude>[[Category:Fólk í Sléttuhreppi]]</noinclude> |
Núverandi breyting frá og með 11. júlí 2026 kl. 18:46
Sigurður Björnsson. Fæddur um 1774. Dáinn 26. maí 1820.
Foreldrar: Björn Jónsson bóndi í Neðri Miðvík og kona hans Hildur Ólafsdóttir.
Kona: Kristín, Jónsdóttir, Þorkellssonar á Atlastöðum.
Börn: Agnar Sigurðsson húsmaður í Kjaransvík. Sigríður Sigurðardóttir, fædd 1814, ólst upp í Vatnsfirði, átti Bjarna Einarsson á Hálshúsum í Vatnsfjarðarsveit. Sigurhildur Sigurðardóttir, dáin 10. febrúar 1857. Hún ólst upp hjá móðursystur sinni, Ragnheiði Jónsdóttur á Hesteyri. Sigurður Sigurðsson, dáinn 10. júlí 1872, ókvæntur vinnumaður. Barn hans með Ingibjörgu Jónsdóttur, Ívarssonar, Guðrún Sigurðardóttir, fyrri kona Pálma Jónssonar í Rekavík bak Látur.
Sigurður Björnsson var húsmaður á Atlastöðum 1810. Var í Hælavík 1811, en mun hafa verið við búhokur á Glúmsstöðum 1812-15. Sagnir herma, að Kristín kona hans hafi látizt þar í volæði eftir barnsburð. Sigurður varð holdsveikur, 1816 var hann karaómagi á Látrum.