Munur á milli breytinga „Látur“
(→Ábúendur) |
|||
| Lína 1: | Lína 1: | ||
==Ábúendur== | ==Ábúendur== | ||
| + | ===Guðmundur bóndi=== | ||
| + | Guðmundur hét bóndi á Látrum 1581. Sbr. [https://baekur.is/bok/a8f5564d-5155-4a24-af34-e74d93a68b24/0/180/Jardabref_fra_16__og_17_#page/n179/mode/2up/search/l%C3%A1trum Jarðabréf 1581] | ||
===Jón Jónsson=== | ===Jón Jónsson=== | ||
Núverandi breyting frá og með 17. júlí 2026 kl. 16:48
Efnisyfirlit
Ábúendur
Guðmundur bóndi
Guðmundur hét bóndi á Látrum 1581. Sbr. Jarðabréf 1581
Jón Jónsson
Jón Jónsson. (Jón Bóndi). Fæddur um 1778. Dáinn 15. september 1839.
Foreldrar: Jón Þorleifsson bóndi á Norðureyri í Súgandafirði og kona hans Guðrún Jónsdóttir.
Kona: Ragnhildur, fædd 1783, dáin 15. júlí 1843, Jónsdóttir, Þorkelssonar bónda í Hlöðuvík, síðar á Atlastöðum.
Börn: Guðrún Jónsdóttir, átti Ísleif Ísleifsson bónda á Hesteyri. Þorkell Jónsson bóndi á Hesteyri.
Jón Jónsson bjó á Látur 1805. Bóndi í Tungu 1810. Hann mun hafa flutzt að Hesteyri 1812. Bóndi á Sléttu, en fluttist aftur að Hesteyri og bjó þar síðan. Hann var kallaður „Jón Bóndi“, mun hafa verið góður sigmaður. Eitt festarhald á Hælavíkurbjargi var við hann kennt og kallað „bóndasig“.
Snorri Einarsson
Snorri Einarsson. F. í sept. 1837. D. 23. janúar 1915.
Foreldrar: Einar Sigurðsson bóndi á Stað í Grunnavík, síðar á Horni, og kona hans Guðfinna Sigmundsdóttir.
Kona 1: 15. sept. 1867, Sigurborg, f. 17. janúar 1831, d. 24. des. 1867, Stígsdóttir, Jónssonar bónda á Sútarabúðum.
Barn: Jakob Snorrason bóndi í Tungu og húsmaður á Sæbóli.
Kona 2: 28. sept. 1870, Salbjörg, f. 2. ágúst 1836, d. 1. apríl 1880, Jóhannesdóttir, Jónssonar bónda í Kvíum.
Barn: Jóel Snorrason, Látrum húsmaður á Látrum.
Snorri var húsmaður í Höfn 1867-73. Húsmaður í Hlöðuvík 1873-75. Húsmaður og bóndi í Höfn 1875-98. Bóndi í Hælavík 1898-99. Bóndi Tungu 1899-1913. Fluttist þá að Látrum og átti þar heima síðustu tvö árin.