Jón Guðlaugsson, Neðri Miðvík

Úr Slttuhreppur
Útgáfa frá 10. ágúst 2025 kl. 14:14 eftir Ingvi (Spjall | framlög) Útgáfa frá 10. ágúst 2025 kl. 14:14 eftir Ingvi (Spjall | framlög)
Jump to navigation Jump to search

Jón Guðlaugsson. Fæddur 1748. Dáinn 23. febrúar 1819.

Hann var sonur Guðlaugur Ísleiksson, Neðri Miðvík, Guðlaugs Ísleikssonar í Neðri Miðvík.

Kona: Þórdís, dáin 29. júlí 1818, Brandsdóttir, Jónssonar á Höfða í Grunnavíkurhreppi.

Börn: Guðlaugur Jónsson, bóndi í Efri Miðvík. Bjarni Jónsson, kvæntist ekki, en átti ein þrjú börn sitt með hverri, eitt með Steinunni Snorradóttur úr Höfn, annað með Þorgerði Árnadóttur og þrðija með Kristínu Davíðsdóttur í Stakkadal. Bjarni fluttist vestur í Bolungarvík 1818, ef til vill vegna barneignar með Kristínu og mun hann hafa dáið þar. Guðrún Jónsdóttir, átti fyrr Gunnar Sigurðsson úr Reykjafirði, síðar Odd Jónsson frá Hesteyri. Elísabet Jónsdóttir, var tvígift, en ekki er vitað hver fyrri maður hennar var. Seinni maður hennar var Jón Jónsson bóndi í Neðri Miðvík. Karítas Jónsdóttir var þrígift, fyrsti maður hennar var Kristján Hermannsson í Görðum, annar maður Árni Magnússon á Faxastöðum og þriðji maður Guðmundur Gíslason á Höfða, Grunnavík. Kristrún Jónsdóttir, giftist ekki, en átti son Sumarliða Björnsson, drukknaði unglingur. Þórður Jónsson átti Katrínu Ketilsdóttur, bóndi í Skáladal. Ragnheiður Jónsdóttir, var hjá foreldrum sínum í Neðri Miðvík 1801 og sögð 22 ára.

Jón Guðlaugsson mun hafa byrjað búskap í Neðri Miðvík skömmu á eftir 1770 og bjó þar til æviloka. Var um skeið hreppstjóri. Hann er sagður hafa verið allmikill fyrir sér og hraustmenni hið mesta. Jón dó snögglega á milli Neðri Miðvíkur og Látra við svonefndan Jónsklakk.