Halldór Guðmundsson, Tungu
Halldór Guðmundsson. Fæddur um 1784. Dáinn 15. október 1855.
Hann var sonur Guðmundar Halldórssonar í Þverdal.
Kona 1: Hildur, fædd 1782, dáin 28. janúar 1826, Tómasdóttir, Jónssonar í Tungu.
Börn: Hafliði Halldórsson, kvæntist ekki, var alltaf í vinnumennsku. Guðmundur Halldórsson bóndi í Tungu. Marsibil Halldórsdóttir, kona Þorsteins Mikaelssonar í Efri Miðvík. Karvel Halldórsson bóndi í Skáladal. Ásgeir Halldórsson bóndi á Glúmsstöðum. Kristján Halldórsson bóndi í Tungu og Skáladal.
Kona 2: 7. ágúst 1831, Guðríður, fædd 1788, dáin 12. júní 1844, Ásmundsdóttir.
Börn: Jón Halldórsson, Engilráð Halldórsdóttir.
Halldór bjó í Tungu 1799-1802. Var í [Rekavík bak Látur]] 1802-1803. Bóndi í Þverdal 1805-1821. Bóndi í Tungu 1821-1844. Mun þó líkelga hafa búið eitt eða tvö ár á Glúmsstöðum á þessu árabili. Síðustu árin var hann húsmaður í Tungu og þar andaðist hann. Halldór var fátækur, en í munnmælum sagður allhraustur maður.
Jón Halldórsson er sagður heita Jónas í manntölum 1835, 1840 og 1845.