Einar Friðriksson, Neðri Miðvík

Úr Slttuhreppur
Útgáfa frá 14. júlí 2026 kl. 22:06 eftir Ingvi (Spjall | framlög) Útgáfa frá 14. júlí 2026 kl. 22:06 eftir Ingvi (Spjall | framlög) (Ný síða: Einar Friðriksson. Fæddur 3. júlí 1839. Dáinn 26. nóvember 1883. Foreldrar: Friðrik Hallsson í...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Núverandi útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Jump to navigation Jump to search

Einar Friðriksson. Fæddur 3. júlí 1839. Dáinn 26. nóvember 1883.


Foreldrar: Friðrik Hallsson í Neðri Miðvík og kona hans Katrín Jónsdóttir.

Kona: 22. september 1862, Ragnhildur, fædd 21. marz 1837, dáin 25. júní 1866, Jóhannesdóttir, Jóhannessonar bónda í Skáladal, síðar í Efri Miðvík.

Börn: Vigdís Einarsdóttir, f. 29. júní 1860, d. 26. nóv. 1943, kona séra Péturs Maacks á Stað í Grunnavík. Friðrik Einarsson, fæddur 2. marz 1862, kvæntist ekki. Steinunn Einarsdóttir, fædd 23. september 1863.

Einar Friðriksson var húsmaður og bóndi í Neðri Miðvík 1862-66. Var eftir það vinnumaður og húsmaður með börn sín. Hann andaðist i Efri Miðvík og var þá sagður ekkill, sjálfs sín.