Jón Björnsson, Atlastöðum

Úr Sléttuhreppur
Útgáfa frá 12. ágúst 2025 kl. 18:54 eftir Ingvi (Spjall | framlög) Útgáfa frá 12. ágúst 2025 kl. 18:54 eftir Ingvi (Spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Núverandi útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Jump to navigation Jump to search

Jón Björnsson. Fæddur um 1657. Dánarár ókunnugt.

Kona: Borghildur Jónsdóttir, fædd um 1654. Barnlaus.

Jón bjó á Atlastöðum 1703.


Jón og Sigurður bróðir hans selja sína hluti í jörðinni Þverdal í Aðalvík 18. maí 1703 og fengu þeir bræður mat, klæði og fleira „... eftir því sem þeir þurfa í þeirra aðþrengjandi neyð og bjargræðisleysi.“[1]

Móðir: Steinunn Grímsdóttir, fædd um 1619. Var á Atlastöðum 1703.

Bróðir Sigurðar Björnssonar og Bjarna Björnssonar. Systir þeirra gæti hafa verið Dýrfinna Björnsdóttir er var vinnukona Sigurðar skv. manntali 1703.