Árni Jónsson, Neðri Miðvík
Jump to navigation
Jump to search
Árni Jónsson. Fæddur í apríl 1824. Dáinn 15. júlí 1862.
Foreldrar: Jón Jónsson bóndi í Neðri Miðvík og kona hans Helga Þorgilsdóttir.
Kona: 2. október 1849, Steinunn, fædd 26. april 1824, d. 14. mai 1862 Jóhannesdóttir, Jóhannessonar bónda í Skáladal, síðar í Efri Miðvík.
Börn: Finnbogi Árnason bóndi í Efri Miðvík, ólst upp hjá móðurföður sínum Jóhannesi bónda í Efri Miðvík. Ragnheiður Árnadóttir, dáin 3. desember 1907, ógift. Friðrik Árnason, fórst við fuglsig í Hælavíkurbjargi 13. júlí 1877, ókvæntur. Guðfinna Árnadóttir, fædd 1861, dáin 15. maí 1920, ógift.
Árni Jónsson var húsmaður í Neðri Miðvík frá 1850 til æviloka.