Guðmundur Halldórsson, Tungu

Úr Slttuhreppur
Jump to navigation Jump to search

Guðmundur Halldórsson. Fæddur 5. júlí 1806. Dáinn 16. júní 1862.

Foreldrar: Halldór Guðmundsson bóndi í Þverdal og fyrri kona hans Hildur Tómasdóttir.

Kona 1: 9. ágúst 1835, Sólbjört, fædd 1811, dáin 25. maí 1841, Ásmundsdóttir, Árnasonar á Sæbóli.

Börn: Guðmundur Guðmundsson, fæddur 1837, dáinn 13. maí 1902. Var húsmaður á Breiðabóli, Skálavík 1890. Ráðskona hans var Kristín Björnsdóttir úr Laugardal í Djúpi. Sonur þeirra var Eyjólfur GUðmundsson. Hildur Guðmundsdóttir, giftist ekki.

Sonur Sólbjartar, áður en hún giftist, með Einari Sigurðssyni bónda á Horni, Guðmundur Einarsson húsmaður á Horni.

Kona 2: 3. nóvember 1844, Guðrún, fædd 1807, dáin 14. september 1855, Ólafsdóttir.

Börn: Jóhanna Guðmundsdóttir dó ung. Sólbjört Guðmundsdóttir, Tungu, dáin 17. janúar 1921, giftist ekki.

Guðmundur Halldórsson bjó í Tungu 1835-1850 eða lengur, var hættur búskap 1855 og eftir það vinnumaður. Hann andaðist á Látrum.