Munur á milli breytinga „Rekavík bak Látur“

Úr Slttuhreppur
Jump to navigation Jump to search
(Ábúendur)
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 12. júlí 2026 kl. 12:29

Fyrir utan Tungu er fjallshyrnan Kóngar (366 m), utan þeirra eru nokkrir litlir dalir upp í fjallgarðinn, er nefnast Hvestudalir. Upp og vestur af þeim gnæfir fjallið Hvesta (513 m). Heldur hún að Fljótavík að sunnan. Frá Hvestu inn að Tröllaskarði er fjallgarður, sem nefnist einu nafni Kjölur. Upp á hann er farið úr Tungudal, og er sú leið, til Látra og Rekavíkur, oft nefnd Tunguheiði. Vestan við Hvestu er lítil vík, Rekavík bak Látur. Vestan hennar skagar Straumnes útnorður í haf. Straumnes er í rauninni gríðarstórt fjall: Yzt norðaustan á því er fjallið nefnt Skorar (435 m), og halda þær að Rekavík að vestan. Innan við Skorar er dalur, sem nefnist Öldu- dalur. Neðst í honum, vestan til við botn víkurinnar, er bærinn Rekavík. Bæjarfjall (430 m) tekur við fyrir innan Öldudal, þá er Grasdalur og innan við hann Grasdalsfjall. Innan þess opnast sjálf Aðalvík, enda er þá skammt til Látra.

Undirlendi Rekavíkur er að mestu hulið af allstóru vatni, Reka- víkurvatni (2-3 km²). Milli vatns og sjávar er mjór malarkambur. Innst í víkinni er annað vatn lítið, Hálsavatn. Hár malarkambur, að mestu þakinn gróðri, er milli vatnanna og nefnist Skammárholt, en Skammá rennur gegnum hann úr Hálsavatni í Rekavíkurvatn. Með- fram vatninu og víkinni að vestan er allmikið graslendi, en nær ekkert að austan, þar liggja hlíðar Hvestu niður í vatnið, snarbrattar og gróðurlausar. Bandaríska herliðið lét leggja akfæran veg frá Látrum að Rekavík, og af honum liggur akvegur upp úr Grasdal upp á Straumnesfjall. Þetta er eina akfæra bæjarleiðin í hreppnum.

Rekavíkur veit ég fyrst getið í rekaskrá Vatnsfjarðarkirkju 1327. Þar segir, að Vatnsfjarðarkirkja eigi „siettungh i ollum Reka j Rekavik a bak laatrum". Sama er sagt i Vilkinsmáldaga 1397. Í sálugjafabréfi Björns Einarssonar Jórsalafara frá 25. júlí 1405 getur þess, að Björn gefi ma. til legstaðar sér Vatnsfjarðarkirkju „siottung j aullum Reka j Rekavik aa bak latrum“. Eftir þessu mætti ætla, að Vatnsfjarðarkirkja hefði eignast tvö sjöttu hluta í öllum reka, þ.e. þriðjung. Svo hefur þó ekki verið talið, er Stefán biskup Jónsson setti Vatnsfjarðarkirkju máldaga 1509. Í honum stendur enn „siettvngvr i avllvm reka j rekavik hia latrvm“. Samvkæmt Vilkinsmáldaga 1397 hafa kirkjurnar í Aðalvík og Grunnavík báðar átt rekaítök í Rekavík, Aðalvíkurkirkja „tolfttung hualreka oc vidreka med agoda“, og Grunnavíkurkirkja er talinn „tolftungur i hualreka oc xvjde hlutur, tolftungur j vidreka oc ollum giædumm“. Sömu ítaka er getið í Gíslamáldögum frá 1570 og tekið fram, að Einar Eiríksson hafi gefið þessi ítök til kirknanna. Þeirra er þó ekki getið í testamentisbréfi EInars, sem varðveist hefur, frá 1383. Um eignarhald jarðarinnar nægir að vísa til þess, er áður seigir um Atlastaði, þar til hún varð konungsgóss 1541. Árið 1895 keyti ábúandi hennar, Pálmi Jónsson, hana af landssjóði fyrir 400 kr. út í hönd. Afsalsbréf til Pálma var gefið út 19. marz 1894.


Ábúendur

Jón Guðlaugsson

Jón Guðlaugsson. Fæddur um 1661. Dánarár ókunnugt.

Kona Jóns var Þuríður Jónsdóttir, fædd um 1657.

Börn: Guðlaugur Jónsson bóndi í Þverdal. Guðrún Jónsdóttir, fædd um 1662.

Jón Guðlaugsson bjó í Rekavík 1703, en var horfinn úr ábúendatölu í hreppnum 1710.

Bjarni Gíslason

Bjarni Gíslason. Hann bjó í Rekavík 1710, og mun hafa verið innan úr Djúpi. Ekki er vitað hve lengi hann bjó í Rekavík.


Kolbeinn Jónsson

Kolbeinn Jónsson. F. 1689. Var á lífi 1753. Foreldrar: Jón Þorbjörnsson bóndi í Efri Miðvík og kona hans Guðrún Jónsdóttir.

Börn: Bjarni Kolbeinsson. Jósef Kolbeinsson. Jón Kolbeinsson bóndi á Hesteyri. Þorsteinn Kolbeinsson. Sigríður Kolbeinsdóttir og Sigþrúður Kolbeinsdóttir, konar Magnúsar á Skjaldfönn.

Kolbeinn bjó í Rekavík 1735 og hefur þá líklega verið búinn að búa þar um nokkurt árabil. Um fjölskyldu hans og heimili spannst eina morðmálið, sem vitað er um í Sléttuhreppi.

Vorið 1744 komu tvær persónur á báti í Rekavík, Sveinn Jónsson og Sigríður Jónsdóttir. Þau höfðu strokið úr Arnarfirði og leituðu þarna skjóls. Tók Kolbeinn við þeim. Sigríður dó í Rekavík, en Sveinn komst til hollenzkra með hjálp Kolbeins bónda. Löngu seinna kvisaðist að Bjarni Kolbeinsson hefði orðið Sigríði að bana. Það var ekki fyrr en 1760 að mál þetta var rannsakað. Bárust öll bönd að Bjarna, en hann mun hafa þverlega neitað allri sök. Hann var dæmdur til lífláts á Sléttuþingi og staðfesti lögmannsdómur. En hæstiréttur breytti endanlega dómnum í tveggja ára betrunarhúsvist í Reykjavík. Þá hegningu þoldi Bjarni, og hefur þau ár unnið að byggingu hegningarhússins í Reykjavík, nú stjórnaráðshússins. Að lokinni refsivistinni slapp Bjarni, en ekki er vitað, hvað af honum þá varð. Áður en hann var tekinn fyrir morðsökina, var hann sakaður og klagaður af séra Snorra Björnssyni á Stað í Aðalvík fyrir barneignir og vanrækslu á kirkjusókn.

Kolbeinn hefur líklega leitað norður á Strandir, að Horni, eftir atburðina í Rekavík. Þar bjó hann 1753, en var dáinn 1760, þegar rannsóknin á morðmálinu hófst.

Óljósar sagnir hafa geymzt í Sléttuhreppi um þá feðga, Kolbein og Bjarna, en þar hafa þeir verið nefndir stundum öðrum nöfnum.


Þorsteinn Einarsson

Þorsteinn Einarsson, Rekavík bak Látrar

Jón Guðmundsson

Jón Guðmundsson, Rekavík bak Látrar

Þuríður Sigurðardóttir

Þuríður Sigurðardóttir. F. um 1736. Var á lífi 1801.

Hún hefur líklega verið dóttir Sigurðar Eldjárnssonar í Efri-Miðvík. Giftist ekki. Hún bjó í Rekavík 1786-89. Bjó í Hlöðuvík 1789-91, Sléttu 1791-92, var búlaus 1792-93. Bjó aftur í Hlöðuvík 1793-93. Hún var í Kjaransvík 1801 og þá orðin sveitlæg.


Árni Jónsson

Árni Jónsson, Látrum

Ásmundur Árnason

Ásmundur Árnason, Rekavík bak Látrar

Ívar Bjarnason

Ívar Bjarnason, Rekavík bak Látrar

Björn Guðmundsson

Björn Guðmundsson, Rekavík bak Látrar

Ólafur Jónsson

Ólafur Jónsson. F. um 1791. D. 13. nóvember 1855.

Foreldrar: Jón Þorkelsson bóndi á Atlastöðum og kona hans Þóra Snorradóttir.

Kona: Soffía, f. 1793, d. 22. marz 1859, Jónsdóttir, EInarssonar á Steinólfsstöðum og seinni konu hans, Guðrúnar Lárentíusdóttur. Hún var dóttir Lárentíusar Erlendssonar sýslumanns Ólafssonar. Soffía var hagmælt, og geymast enn í minni nokkrar vísur hennar.

Börn: Sveinn Ólafsson, dó ókvæntur 1866. Kjartan Ólafsson bóndi á Atlastöðum. Kári Ólafsson, d. 23. des. 1876, ókvæntur, átti son með Herborgu Friðriksdóttur í N. miðvík, Þórð Kárason á Látrum. Karólína Ólafsdóttir, átti fyrr Þeófílusson á Látrum, síðar Ísleif Ísleifsson í Hlöðuvík. Dóttir Ólafs með Ástríði Jónsdóttur, systur konu hans, var Guðrún Ólafsdóttir kona Jósefs Hjálmarssonar á Atlastöðum.

Ólafur bjó með móður sinni á Atlastöðum 1816. Bóndi í Rekavík 1823-25. Bóndi á Atlastöðum 1825-30. Bóndi í Hlöðuvík 1830-45. Bóndi á Atlastöðum frá 1845 til æviloka.


Jón Björnsson

Jón Björnsson, Rekavík bak Látrar

Pálmi Jónsson

Pálmi Jónsson, Rekavík bak Látrar

Halldór Þeofílusson

Halldór Þeofílusson, Neðri Miðvík

Kristján Jónsson

Kristján Jónsson. Fæddur 20. júní 1846. Dáinn 4. ágúst 1923.

Foreldrar: Jón Björnsson bóndi í Rekavík bak Látur og kona hans Silfá Jónsdóttir.

Kona: 28. ágúst 1870, Kristín, fædd 7. júlí 1850, dáin 8. apríl 1941, Sigurðardóttir, Jónssonar bónda á Marðareyri, síðar á Hesteyri.

Börn: Sigriður Kristjánsdóttir, átti Bjarna Þorsteinsson bónda i Neðri Miðvík. Arnór Kristjánsson kaupmaður á Látrum og á Ísafirði. Albert Kristjánsson trésmiður á Ísafirði, átti Hermanníu Brynjólfsdóttur frá Sléttu, var seinni maður hennar. Sigurður Kristjánsson smiður, fór ungur til Ameríku. Jón Kristjánsson, bóndi i Þverdal, trésmíðameistari á Ísafirði og í Reykjavík.

Kristján Jónsson var húsmaður í Rekavík bak Látur 1870-76. Bóndi í Neðri Miðvík frá 1876 til æviloka.


Guðmundur Pálmason

Guðmundur Pálmason, Rekavík bak Látrar

Friðrik Magnússon

Friðrik Magnússon, Látrum

Sigurgeir Pálmason

Sigurgeir Pálmason, Rekavík bak Látrar

Sölvi Pálmason

Sölvi Pálmason, Rekavík bak Látrar

Pálmi Ólafur Guðmundsson

Pálmi Ólafur Guðmundsson, Rekavík bak Látrar

Stefán Guðmundsson

Stefán Guðmundsson Fædddur 31. maí 1906.

Foreldrar: Guðmundur Pálmason bóndi í Rekavík og kona hans Ketilríður Þorkelsdóttir. Ókvæntur.

Stefán var bóndi í Rekavík 1937-47. Hann fluttist þá inn í Álftafjörð.