Efri Miðvík
Efnisyfirlit
Ábúendur
Eiríkur Jónsson
Eiríkur Jónsson. Fæddur um 1666. Dánarár ókunnugt. Hann hefur líklega verið sonur Jóns Guðmundssonar, sem bjó Efri Miðvík 1661.
Kona Eiríks var Hallbjörg Jónsdóttir, fædd um 1665.
Börn: Ástríður Eiríksdóttir, f. 1694, Guðrún Eiríksdóttir, f. 1697. Halldóra Eiríksdóttir, f. 1699, Margrét Eiríksdóttir, f. 1701, Kristin Eiríksdóttir, f. 1703.
Eiríkur bjó í Efri Miðvík 1703, en eftir það er ekki um hann vitað.
Ólafur Ólafsson
Ólafur Ólafsson. F. um 1770. D. 13. júní 1843.
Foreldrar: Ólafur Einarsson þá bóndi í Tungu, síðar á Látrum og kona hans Vigdís Þórðardóttir.
Kona 1: Margrét Björnsdóttir, d. 6. ág. 1829.
Börn: Þeófílus Ólafsson bóndi á Látrum. Rannveig Ólafsdóttir átti Jóhannes Jóhannesson bónda í E. Miðvík. Dagbjört Ólafsdóttir giftist ekki. Salbjörg Ólafsdóttir, seinni kona Árna Halldórssonar hreppstjóra á Látrum. Hildur Ólafsdóttir, átti fyrr Hjálmar Jónsson bónda í Kjaransvík, síðar Jóstein Jónsson bónda í Tungu.
Kona 2: 16. nóv 1829, Ragnhildur, d. 5 maí 1852, Aradóttir, Skordals prests á Stað í Aðalvík. Þau barnlaus.
Ólafur Ólafsson var húsmaður á Stað 1793. Bóndi í E. Miðvík 1797. Bóndi á Látrum 1801. Bóndi í Hlöðuvík 1805-12. Bóndi á Læk 1812-36. Var búsettur á Látrum 1836-43. Mun hafa verið sæmilega efnaður.
Rósinkar Rósinkarsson
Rósinkar Rósinkarsson. F. 19. september 1832. D. 22. september 1883.
Foreldrar: Rósinkar Mikaelsson bóndi í Kjaransvík og kona hans Ingibjörg Ísleifsdóttir.
Kona: 18. sept. 1862, Svanborg, f. 4. maí 1838, d. 13. janúar 1914, Friðriksdóttir Hallssonar í N. Miðvík.
Börn: Jóna Rósinkransdóttir, giftist ekki. Guðmundur Rósinkransson, drukknaði ókvæntur. María Rósinkransdóttir, giftist ekki. Svanfríður Rósinkransdóttir, d. 22. okt. 1907, ógift. Guðbjörg Rósinkransdóttir, átti Jónas Elíasson Ísafirði.
Barn Svanborgar áður en hún giftist með Jóhannes Jóhannessyni Jóhannes Jóhannesson. Kvæntist ekki.
Rósinkar var húsmaður og bóndi í Efri-Miðvík 1864-66. Bóndi í Hlöðuvík 1866-67. Bóndi í Hælavík frá 1867 til æviloka.
Valdimar Þorbergsson
Valdimar Þorbergsson. Fæddur 14. nóvember 1906.
Foreldrar: Þorbergur Jónsson bóndi í Efri Miðvík og seinni kona hans Oddný Finnbogadóttir.
Kona 26. marz 1932, Ingibjörg, f. 19. sept. 1908, Bjarnadóttir, Bjarnasonar úr Flatey, þá búsettur í Búðardal, Dalasýslu.
Börn: Héðinn Breiðfjörð Valdimarsson, f. 27. febr. 1933, stýrimaður á Ísafirði, ókv. Birgir Breiðfjörð Valdimarsson, f. 30. júlí 1934, flugumferðarstjóri á Ísafirði, kvæntur Maríu Erlu Eiríksdóttur úr Keflavík. Birna Unnur Valdimarsdóttir, f. 28. febrúar 1936, kona Heiðars Guõmundssonar rafvirkjameistara á Ísafirði.
Valdimar Þorbergsson var bóndi í Efri Miðvík 1935-44. Bóndi á Sæbóli 1944-47. Þaðan fluttist Valdimar til Ísafjarðar. Efri Miðvík fór í eyði við burtflutning þeirra bræðra, Sölva og Finnbjarnar Þorbergssonar.