Munur á milli breytinga „Neðri Miðvík“
(→Jón Vitusson) |
(→Jón Vitusson) |
||
| Lína 5: | Lína 5: | ||
===Jón Vitusson=== | ===Jón Vitusson=== | ||
{{:Jón Vitusson, Neðri Miðvík}} | {{:Jón Vitusson, Neðri Miðvík}} | ||
| + | ===Tómas Einarsson=== | ||
| + | {{:Tómas Einarsson, Neðri Miðvík}} | ||
| + | ===Þorlákur Halldórsson=== | ||
| + | {{:Þorlákur Halldórsson, Neðri Miðvík}} | ||
| + | ==Guðlaugur Ísleiksson=== | ||
| + | {{:Guðlaugur Ísleiksson, Neðri Miðvík}} | ||
| + | ===Benedikt Þorláksson=== | ||
| + | {{:Benedikt Þorláksson, Neðri Miðvík}} | ||
| + | ===Jón Guðlaugsson=== | ||
| + | {{:Jón Guðlaugsson, Neðri Miðvík}} | ||
| + | ===Björn Jónsson=== | ||
| + | {{:Björn Jónsson, Garðar}} | ||
Útgáfa síðunnar 10. ágúst 2025 kl. 13:41
Efnisyfirlit
Ábúendur
Einar Jónsson
Einar Jónsson. Fæddur um 1651. Dánarár óvíst.
Kona: Guðrún Pálsdóttir
Börn: Guðrún Einarsdóttir, fædd um 1685. Mildríður Einarsdóttir, fædd um 1686. Páll Einarsson, fæddur um 1681.
Einar bjó í Neðri Miðvík 1681-1703. Ekki er vitað um hann eftir það. Í Hlöðuvík bjó 1735 Einar Jónsson, hefði það verið Einar í Miðvík hefði hann átt að vera kominn yfir áttrætt, svo heldur er ótrúlegt að um sama mann sé að ræða.
Jón Vitusson
Jón Vitusson. Fæddur um 1642. Dánarár ókunnugt. Hann var bóndi í Neðri Miðvík 1703, en ekki er vitað um hann eftir það.
Kona hans var Herdís Jónsdóttir.
Dóttir þeirra var Ástríður Jónsdóttir.
Tómas Einarsson
Tómas Einarsson. Fæddur um 1683. Dánarár ókunnugt.
Hann var vinnumaður á Svarfhóli í Álftafirði 1703, en var orðinn bóndi í Neðri Miðvík 1710. Óvíst er hve lengi hann bjó þar.
Þorlákur Halldórsson
Þorlákur Halldórsson. Fæddur um 1693. Líklega dáinn 1753.
Foreldrar: Halldór Gunnlaugsson, Látrahúsum, og kona hans, Guðlaug Bjarnadóttir.
Sonur Þorláks mun hafa verið Benedikt Þorláksson í Neðri Miðvik.
Þorlákur bjó í Neðri Miðvík 1735.
Guðlaugur Ísleiksson=
Guðlaugur Ísleiksson. Fæddur um 1710. Dánarár ókunnugt.
Hann var sonur Ísleiks Eiríkssonar í Þverdal.
Sonur Guðlaugs var Jón Guðlaugsson hreppstjóri í Neðri Miðvík.
Guõlaugur Ísleiksson bjó í Neðri Miðvík 1760 og mun hafa búið þar fram um 1770.
Benedikt Þorláksson
Benedikt Þorláksson. Fæddur um 1728. Dáinn fyrir 1787.
Hann mun hafa verið sonur Þorláks Halldórssonar.
Í bændatalinu 1762 er Benedikt talinn eiga fjögur börn, þrjár dætur og einn son. Ekki er með vissu hægt að segja, hver þau hata verið En líkur benda til þess, að þau hafi verið þessi: Porsteinn Benediktsson á Látrum. Ingibjörg Benediktsdóttir kona Halldórs Bjarnasonar hreppstjóra á Látrum. Kristín Benediktsdóttir kona Halldórs Tómassonar á Læk og Rebekka Benediktsdóttir kona Eirfks Arnasonar á Sæbóli.
Benedikt var farinn að búa í Neðri Miðvík 1760 og hefur búið þar fram um 1770. Hefur líklega búið áður eitthvað á Sæbóli.
Jón Guðlaugsson
Jón Guðlaugsson. Fæddur 1748. Dáinn 23. febrúar 1819.
Hann var sonur Guðlaugs Ísleikssonar í Neðri Miðvík.
Kona: Þórdís, dáin 29. júlí 1818, Brandsdóttir, Jónssonar á Höfða í Grunnavíkurhreppi.
Börn:
- Guðlaugur Jónsson, bóndi í Efri Miðvík.
- Bjarni Jónsson, kvæntist ekki, en átti ein þrjú börn sitt með hverri, eitt með Steinunni Snorradóttur úr Höfn, annað með Þorgerði Árnadóttur og þriðja með Kristínu Davíðsdóttur í Stakkadal. Bjarni fluttist vestur í Bolungarvík 1818, ef til vill vegna barneignar með Kristínu og mun hann hafa dáið þar.
- Guðrún Jónsdóttir, átti fyrr Gunnar Sigurðsson úr Reykjafirði, síðar Odd Jónsson frá Hesteyri.
- Elísabet Jónsdóttir, var tvígift, en ekki er vitað hver fyrri maður hennar var. Seinni maður hennar var Jón Jónsson bóndi í Efri Miðvík.
- Karítas Jónsdóttir var þrígift, fyrsti maður hennar var Kristján Hermannsson í Görðum, annar maður Árni Magnússon á Faxastöðum og þriðji maður Guðmundur Gíslason á Höfða, Grunnavík.
- Jón Jónsson bóndi í Neðri Miðvík
- Kristrún Jónsdóttir, giftist ekki, en átti son Sumarliða Björnsson, drukknaði unglingur.
- Þórður Jónsson átti Katrínu Ketilsdóttur, bóndi í Skáladal.
- Ragnheiður Jónsdóttir, var hjá foreldrum sínum í Neðri Miðvík 1801 og sögð 22 ára.
Jón Guðlaugsson mun hafa byrjað búskap í Neðri Miðvík skömmu á eftir 1770 og bjó þar til æviloka. Var um skeið hreppstjóri. Hann er sagður hafa verið allmikill fyrir sér og hraustmenni hið mesta. Jón dó snögglega á milli Neðri Miðvíkur og Látra við svonefndan Jónsklakk.