Finnur Gestsson, Neðri Miðvík
Finnur Gestsson. Fæddur 30. júní 1823. Dáinn 8. september 1884. Foreldrar: Gestur Helgason bóndi í Vatnadal í Súgandafirði, síðar bóndi á Sæbóli, og kona hans Guðrún Finnbjörnsdóttir.
Kona: 13. okt. 1847, Borghildur, f. 9. maí 1825, d. 7. febr. 1896, Jónsdóttir, Jónssonar bónda í N. Miðvik.
Börn: Jóhanna Finnsdóttir, átti Brynjólf Guðmundsson i Kjaransvík. Þorbjörg Finnsdóttir, þriðja kona Ísleifs Ísleifssonar í Hlöðuvík. Hansína Finnsdóttir, átti Kristján Jóhannesson] í Rekavík bak Höfn. Sigríður Finnsdóttir, átti Guðjón Kristjánsson bónda í Tunga. Guðrún Finnsdóttir, giftist ekki, var ráðskona Jóhannesar Sakaríassonar í Rekavík bak Höfn. Gestur Finnsson, dáinn 1. júní 1914, ókvæntur.
Sonur Finns með Sigurlaugu Einarsdóttur, Rósmundur Finnsson, dó á Ísafirði 26. júní 1904.
Finnur Gestsson mun hafa verið húsmaður á Sæbóli 1849–1851. Bóndi í Skáladal 1851-1859. Var á Sæbóli 1860. Aftur í Skáladal 1884. Bóndi í Neðri Miðvík 1865-1870 eða lengur. Húsmaður i Hlöðuvík 1880. Hann dó í Stakkadal.