Munur á milli breytinga „Tunga“

Úr Slttuhreppur
Jump to navigation Jump to search
(Guðni Jósteinsson)
(=Jósef Sigurðsson)
Lína 34: Lína 34:
 
===Marías Benónýsson===
 
===Marías Benónýsson===
 
{{:Marías Benónýnsson, Tungu}}
 
{{:Marías Benónýnsson, Tungu}}
===Jósef Sigurðsson==
+
===Jósef Sigurðsson===
 
{{:Jósef Sigurðsson, Tungu}}
 
{{:Jósef Sigurðsson, Tungu}}
 
===Snorri Einarsson===
 
===Snorri Einarsson===

Útgáfa síðunnar 11. janúar 2014 kl. 23:02

Ábúendur

Eiríkur Guðmundsson

Eiríkur Guðmundsson, Tungu

Bjarni Jónsson

Bjarni Jónsson hefur að öllum líkindum búið í Tungu 1746-1750.

Kona hans var Elín Þórarinsdóttir. Hún bjó ekkja á Sléttu 1753.


Ólafur Einarsson

Ólafur Einarsson, Látrum

Einar Einarsson

Einar Einarsson, Læk

Tómas Jónsson

Tómas Jónsson, Tungu

Davíð Jónsson

Davíð Jónsson, Stakkadal

Halldór Guðmundsson

Halldór Guðmundsson, Tungu

Jósef Hermannsson

Jósef Hermannsson, Stakkadal

Jón Jónsson

Jón Jónsson. Fæddur um 1760. Dáinn 26. ágúst 1811.

Óvíst er um foreldra hans. Ef till vill hefur hann verið sonur Jóns Bjarnasonar á Hesteyri, eins og áður er minnzt á.

Kona: Ragnhildur, fædd um 1764, dáin 7. júlí 1843, Einarsdóttir.

Börn Oddur Jónsson húsmaður í Þverdal. Jón Jónsson bóndi í Efri Miðvík. Einar Jónsson, Hesteyri dó ungur. Katrín Jónsdóttir, Hesteyri drukknaði ung í smalamennsku. Gísli Jónsson dó ungur. Steinn Jónsson bóndi á Álfsstöðum í Hrafnfirði.

Jón Jónsson bjó á Hesteyri 1787-1811, þar af tvör ár á Seleyri í Hesteyrarlandi. Jón fórst með séra Guðmundi Sigurðssyni á Stað.

Ragnhildur ekkja Jóns bjó á Hesteyri til 1817 eða lengur. Hún fluttist síðar til Steins sonar síns á Álfsstöðum og andaðist þar.


Einar Einarsson

Einar Einarsson, Þverdal

Guðmundur Halldórsson

Guðmundur Halldórsson, Tungu

Kristján Halldórsson

Kristján Halldórsson, Tungu

Jósteinn Jónsson

Jósteinn Jónsson, Tungu

Guðni Jósteinsson

Guðni Jósteinsson, Atlastöðum

Salmann Jónsson

Salmann Jónsson. F. 13. marz 1812. D. 2. júlí 1862.

Foreldrar: Jón Snorrason bóndi á Hesteyri, síðast bóndi í Rekavík bak Höfn, og kona hans Silfá Sigurðardóttir.

Kona: 27. okt. 1839, Valdís, f. 1802, d. 26. maí 1888, Jósefsdótti, Jósefssonar í Bolungarvík á Ströndum.

Börn: Svíalín Salmansdóttir, átti Friðrik Steinsson frá Álfsstöðum. Þau bjuggu í Grunnavík.

Salmann var húsmaður í Hlöðuvík 1840, bóndi í Kjaransvík 1850-55. Bóndi í Tungu 1855-60. Húsmaður í Rekavík bak Höfn, þegar hann lézt. „Ekki ógreindur, en sérvitur“.


Betúel Jónsson

Betúel Jónsson, Tungu

Marías Benónýsson

Marías Benónýnsson, Tungu

Jósef Sigurðsson

Jósef Sigurðsson, Tungu

Snorri Einarsson

Snorri Einarsson (Barna-Snorri). F. um 1731. D. 1783-87.

Ekkert bændatal er til úr Sléttuhreppi á þeim tíma, sem Snorri bjó í Höfn. Segja má að skriflegar heimildir séu litlar eða engar um búsetu hans þar. Samt er víst, að hann bjó þar.

Munnmæli segja, að Barna-Snorri hafi búið í Höfn, verið þríkvæntur og átt um tuttugu börn. Ekkja Snorra var Solveig Pétursdóttir, Höfn f. um 1741, líklega dóttir Péturs Oddssonar frá Kollsá í Grunnavíkurhreppi. Hún var enn á lífi 1801. Árið 1762 bjó Snorri Einarsson í Kvíum og var þá 31 árs. Hann bjó þá í fyrsta hjónabandi. Kona hans var sögð þrítug og þau áttu einn son. Telja verður líklegt, að sé Snorri sá, sem síðar bjó í Höfn. En hann hefur mátt sín mikils í barneignum, hafi hann eignast nítján börn eftir 1762, eins og munnmæli hermdu og niðjar hans fullyrtu. Hann hefur flutzt í Höfn rétt eftir 1762, enda Höfn talin í byggð 1766, þótt ekki sé getið nafns ábúandans. Í Höfn hefur hann búið fram yfir 1780. Ekkja hans, Solveig, bjó í Höfn 1787, og yngsta barn þeirra, sem lifði, fæddist í Höfn 1783.

Í manntali 1801 og 1816 er getið einna ellefu eða tólf Snorrabarna og mörg þeirra sögð fædd í Höfn. Þau voru þessi Ingveldur Snorradóttir, fyrri kona Sigurðar Pálssonar á Horni. Þóra Snorradóttir, kona Jóns Þorkelssonar bónda á Atlastöðum. Guðný Snorradóttir kona Þorsteins Stefánssonar í Höfn. Guðrún Snorradóttir, kona Brynjólfs Jónssonar í Hælavík. Anna Snorradóttir, kona Sigurðar Þorsteinssonar á Horni, Jón Snorrason síðast bóndi í Rekavík bak Höfn. Málfríður Snorradóttir, Höfn, dó ung. Steinunn Snorradóttir, Höfn, giftist ekki, en átti barn. Einar Snorrason bóndi í Bolungarvík á Ströndum. Hann var yngstur þeirra Snorrabarna, sem finnast í manntölum. Sigfús Snorrason, Barðsvík bóndi í Barðsvík á Ströndum. Guðmundur Snorrason bóndi í Smiðjuvík og síðar á Glúmsstöðum.

Eins og áður er getið bjó Solveig ekkja Snorra í Höfn, en fluttist þaðan í Hælavík 1788 og bjó þar til 1794. Hún var svo aftur ábúandi í Hælvík 1801.


Guðjón Kristjánsson

Guðjón Kristjánsson, Tungu

Jakob Snorrason

Jakob Snorrason, Sæból

Benedikt Árnason

Benedikt Árnason, Tungu

Friðrik Geirmundsson

Friðrik Geirmundsson, Látrum

Betúel Jón Friðriksson

Betúel Jón Friðriksson]. Fæddur 8. nóvember 1877. Dáinn 31. október 13.

Hann var sonur Friðriks Sigurgarðssonar á Faxastöðum í Grunnavík.

Kona: Friðrika Jónsdóttir, fædd 25. desember 1864.

Barn: Betúel Betúelsson, fæddur 17. september 1905, kvæntist ekki.

Betúel bjó á Steinólfsstöðum, en fluttist til Tungu og bjó þar 1919-1921. Hann fluttist þá aftur til Grunnavíkur. Var síðast búsettur á Ísafirði og andaðist þar.


Hans Elías Bjarnason

Hans Elías Bjarnason. Fæddur 27. september 1897. Sonur Bjarna Gíslasonar og Kristjönu Jónsdóttur á Látrum, var búsettur í Tungu 1926-1937, en fluttist þaðan til Grunnavíkur og var þar búsettur í mörg ár.


Sölvi Andrésson

Sölvi Andrésson, Sléttu

Ólafur Friðbjarnarson

Ólafur Friðbjarnarson, Látrum

Hermann Vernharður Jósefsson

Hermann Vernhaður Jósefsson. Fæddur 12. ágúst 1906.

Foreldrar: Jósef Hermannsson bóndi á Atlastöðum og kona hans Margrét Guðnadóttir.

Kona: 27. nóvember 1929, Þórunn María, fædd 4. júní 1905, Friðriksdóttir, Finnbogasonar í Efri Miðvík.

Börn: Þórunn Friðrika Vernharðsdóttir, fædd 25. janúar 1931, kona Antons Ólasonar sjómanns í Hnífsdal. Herborg Vernharðsdóttir fæddd 29. janúar 1932, kona Ingólfs Eggertssonar skipasmiðs og rafvirkja á Ísafirði. Bára Freyja Ragna Vernharðsdóttir, fædd 2. september 1934, kona Hjörvars Björgvinssonar verkstjóra í Reykjavík. Sigrún Vernharðsdóttir, fædd 29. júní 1940, kona Guðna Ásmundssonar húsasmíðameistara í Hnífsdal. Jósef Hermann Vernharðsson, fæddur 24. marz 1942, rafvirki í Hnífsdal kvæntur Hrafnhildi Samúelsdóttur.

Dóttir Maríu Friðriksdóttur, áður en hún giftist, Helga Hansdóttir, fædd 4. september 1926, kona Hólmgeirs Magnússonar sjómanns á Ísafirði.

Vernharður Jósefsson var bóndi í Tungu 1935-45. Bóndi á Atlastöðum 1945-46. Hann fluttist til Hnífsdal 1946. Vernharður var síðasti ábúandi í Tungu.