Glúmsstaðir
Efnisyfirlit
- 1 Ábúendur
- 1.1 Abraham Sveinsson
- 1.2 Guðmundur Snorrason
- 1.3 Sigurður Björnsson
- 1.4 Helgi Guðmundsson
- 1.5 Ásgeir Halldórsson
- 1.6 Hjálmar Jónsson
- 1.7 Jón Árnason
- 1.8 Engilbert Mikaelsson
- 1.9 Guðmundur Björnsson
- 1.10 Marías Benónýsson
- 1.11 Knut Hertervig
- 1.12 Jóhannes Elíasson
- 1.13 Jósef Sigurðsson
- 1.14 Hjálmar Kristjánsson
- 1.15 Ottó Helgi Guðlaugsson
- 1.16 Híram Jónsson
- 1.17 Hermann Friðriksson
- 1.18 Jón Þorkelsson
Ábúendur
Abraham Sveinsson
Abraham Sveinsson, Efri-Miðvík
Guðmundur Snorrason
Guðmundur Snorrason. Fæddur um 1770. Dáinn 26. ágúst 1811.
Hann mun hafa verið sonur Snorra Einarssonar í Höfn.
Kona: Margrét Jónsdóttir, fædd um 1774.
Barn: Valgerður Guðmundsdóttir.
Guðmundur bjó í Smiðjuvík í Grunnavíkurhreppi 1801, en var orðinn bóndi á Glúmsstöðum 1810 og hefur líklega verið kominn þangað 1808. Hann mun hafa drukknað með séra Guðmundi Sigurðssyni á Stað. Margrét, ekkja Guðmundar, bjó á Glúmsstöðum 1811, en hvað um hana hefur orðið er ekki vitað.
Sigurður Björnsson
Sigurður Björnsson. Fæddur um 1774. Dáinn 26. maí 1820.
Foreldrar: Björn Jónsson bóndi í Neðri Miðvík og kona hans Hildur Ólafsdóttir.
Kona: Kristín, Jónsdóttir, Þorkellssonar á Atlastöðum.
Börn: Agnar Sigurðsson húsmaður í Kjaransvík. Sigríður Sigurðardóttir, fædd 1814, ólst upp í Vatnsfirði, átti Bjarna Einarsson á Hálshúsum í Vatnsfjarðarsveit. Sigurhildur Sigurðardóttir, dáin 10. febrúar 1857. Hún ólst upp hjá móðursystur sinni, Ragnheiði Jónsdóttur á Hesteyri. Sigurður Sigurðsson, dáinn 10. júlí 1872, ókvæntur vinnumaður. Barn hans með Ingibjörgu Jónsdóttur, Ívarssonar, Guðrún Sigurðardóttir, fyrri kona Pálma Jónssonar í Rekavík bak Látur.
Sigurður Björnsson var húsmaður á Atlastöðum 1810. Var í Hælavík 1811, en mun hafa verið við búhokur á Glúmsstöðum 1812-15. Sagnir herma, að Kristín kona hans hafi látizt þar í volæði eftir barnsburð. Sigurður varð holdsveikur, 1816 var hann karaómagi á Látrum.
Helgi Guðmundsson
Helgi Guðmundsson. Fæddur 1794. Dáinn 3. apríl 1865.
Foreldrar: Guðmundur Guðmundsson bóndi í Þverdal og kona hans Hildur Ólafsdóttir
Kona 1: Rannveig, fædd 1795, dáin 29. marz 1823, Þorsteinsdóttir, ólst upp í Kvíum í Jökulfjörðum.
Börn: Benóný Helgason, dáinn 7. október 1835 úr holdsveiki, ókvæntur. Hjálmar Helgason fæddur 22. júní 1822, fluttist með sérs Stefáni Hanssyni austur í Fljótshlíð.
Kona 2: 24. apríl 1831, Guðrún, fædd 1791, dáin 2. maí 1863, Eyjólfsdóttir, Snjólfssonar á Hesteyri.
Barn: Herborg Helgadóttir, giftist ekki, en átti son með Rósinkar Mikaelssyni í Kjaransvík, Benóný Rósinkarsson, dó átta ára.
Helgi var bóndi á Glúmsstöðum 1822-1836. Hann var niðursetningur á Látrum 1840 og virðist hafa verið sjúklingur á sveit eftir það.
Ásgeir Halldórsson
Ásgeir Halldórsson. F. 29. febrúar 1804. D. 25. nóvember 1852.
Foreldrar: Halldór Guðmundsson bóndi í Þverdal og fyrri kona hans Hildur Tómasdóttir.
Kona. 29. sept. 1832, Soffía Mahalaleelsdóttir, ekkja Þórðar Jónssonar húsmanns á Atlastöðum.
Börn: Þórður Ásgeirsson, Tómas Ásgeirsson, dóu báðir ungir. Þórdís Ásgeirsdóttir, varð holdsveik.
Ásgeir bjó á Glúmsstöðum 1833-35. Húsmaður í Rekavík bak Höfn 1836-40. Húsmaður í Hlöðuvík 1845-50, dó í Hælavík.
Hjálmar Jónsson
Hjálmar Jónsson. Fæddur 1. maí 1805. Dáinn 5. marz 1842.
Foreldrar: Jón Jónsson bóndi á Stað, síðar á Sléttu, og kona hans Herdís Gísladóttir.
Kona: 15. september 1832, Hildur, fædd 1814, dáin 16. ágúst 1871, Ólafsdóttir, Ólafssonar á Læk. Hún átti síðar Jóstein Jónsson.
Börn: Jón Hjálmarsson bóndi á Látrum. Sigurður Hjálmarsson húsmaður á Sæbóli.
Hjálmar var fyrst við búskap á Sléttu. Bóndi á Glúmsstöðum 1837-40. Bóndi í Kjarnsvík 1840-42. Ekkja hans bjó þar áfram og giftist aftur Jósteini Jónssyni. Bjuggu þau í Kjaransvík til 1852.
Hjálmar varð bráðkvaddur á leið til Hesteyrar.
Jón Árnason
Jón Árnason. F. 1801. D. 19. desember 1869.
Foreldrar: Árni Jónsson vinnumaður á Ósi í Bolungarvík og kona hans Margrét Þorsteinsdóttir.
Kona: María Pétursdóttir, d. 18. júní 1853, Jósefssonar bónda á Álfsstöðum og í Hlöðuvík.
Börn: Árni Jónsson húsmaður í Skáladal. Friðrik Jónsson, kvæntist ekki. Margrét Jónsdóttir, Sigríður Jónsdóttir og Solveig Jónsdóttir.
Jón var húsmaður á Hesteyri 1839. Bóndi á Glúmsstöðum 1840-44. Bóndi í Hlöðuvík 1844-56. Var eftir það í vinnumennsku, síðast vinnumaður á Sæbóli og varð þar úti á milli bæja.
Engilbert Mikaelsson
Engilbert Mikaelsson. Fæddur 1804. Dáinn 17. júní 1877.
Foreldrar: Mikael Björnsson bóndi í Þverdal, síðar í Kjaransvík og kona hans Guðrún Þorsteinsdóttir.
Kona: 20. september 1835, Borghildur Guðmundsdóttir, ekkja Níelsar Tómassonar í Efri Miðvík. Barnlaus.
Engilbert var húsmaður á Stað í Aðalvík 1840. Bóndi á Glúmsstöðum 1845-1858. Húsmaður í Skáladal 1860. Var eftir það vinnumaður.
Guðmundur Björnsson
Guðmundur Björnsson. Fæddur 23. ágúst 1824. Dáinn 24. september 1887.
Foreldrar: Björn Guðmundsson bóndi í Rekavík bak Látur og kona hans Þorgerður Jónsdóttir.
Kona: 28. september 1854, Rannveig, fædd 23. júlí 1833 dáin 4. janúar 1898, Jóhannesdóttir Jóhannessonar á Hesteyri, síðar bónda í Efri Miðvík.
Börn: Magnús Guðmundsson, fæddur 11. ágúst 1857, dáinn 26. júní 1888, drukknaði með Magnúsi Elíassyni á Dynjanda í Jökulfjörðum, ókvæntur. Þorbjörn Guðmundsson, fæddur 27. ágúst 1864, lengst búsettur á Flateyri. Margrét Guðmundsdóttir, kona Vagn Benediktsson á Hesteyri. Benedikt Guðmundsson, fæddur 25. september 1862, daínn 31. desember 1938, ókvæntur. Sonur hans Guðmundur Ragnar Benediktsson. Benedikt var búsettur í Hnífsdal. Vigdís Guðmundsdóttir giftist ekki. Ragnhildur Guðmundsdóttir giftist ekki. Pálmi Guðmundsson, fluttist unglingur vestur á Ingjaldssand, fórst af slysförum á Sólbakka í Önundafirði ókvæntur 17. apríl 1899.
Guðmundur Björnsson bjó í Rekavík bak Látur 1854-88. Bóndi á Glúmsstöðum frá 1858 til æviloka.
Marías Benónýsson
Knut Hertervig
Jóhannes Elíasson
Jósef Sigurðsson
Hjálmar Kristjánsson
Ottó Helgi Guðlaugsson
Ottó Helgi Guðlaugsson. Fæddur 19. apríl 1855. Dáinn 31.október 1924.
Foreldrar: Guðlaugur Hallgrímsson bóndi á Eyvindará á Flateyjardal, Suður-Þingeyjarsýslu, og kona hans Lilja Bjarnadóttir.
Kona: 30. nóvember 1882, Jóhanna Þuríður Halldórsdóttir. Þau slitu samvistir 1889.
Barn: Lilja Ottósdóttir, fædd 6. nóvember 1883, dó þriggja ára.
Ráðskona Ottós var: Halldóra, fædd 5. september 1863, Sigurðardóttir, Jónssonar bónda á Kvíavöllum í Útskálasókn.
Börn: Jón Ottósson, fæddur 14. júní 1891, lengst búsettur á Hólmavík, átti Maríu Bjarnadóttur frá Bólstað í Steingrímsfirði. Einar (skrifar sig Helgason) fæddur 14. ágúst 1893, sjómaður í Reykjavík. Björg Margrét Ottósdóttir, fædd 18. nóvember 1895, húsfreyja á Akureyri. Guðrún Ottósdóttir, fædd 14. desember 1899, átti Hjört Guðjón Samsonarsonar bónda í Sunndal í Bjarnarfirði á Ströndum. Hallgrímur Ottósson, fæddur 22. júlí 1905, sjómaður á Bíldudal.
Ottó bjó í Reykjavík 1882-89. Þaðan flutti hann suður í Útskálasókn og var bóndi á Fitjum 1892-95. Fluttist þaðan vestur að Ísafjarðardjúpi. Var á Bæjum á Snæfjallaströnd 1899 og þar i sveit til 1903, að hann kom að Glúmsstöðum í Fljóti og var þar í eitt ár. Bóndi í Kjaransvík 1904-06. Búsettur í Bolungarvík 1906-17. Hann mun þá hafa flutzt norður í Fnjóskadal, en hann dó í Stærra-Árskógi í Eyjafirði.
Híram Jónsson
Hermann Friðriksson
Hermann Friðriksson, Atlastöðum